Að þessu sinni er komið að leik meistaraflokks karla gegn ÍA, síðast liðinn fimmtudag. Fjögur mörk og eitthvað af færum litu dagsins ljós. Svipmyndir úr leiknum eru aðgengilegar á þessari slóð: http://www.youtube.com/watch?v=oq3gbcebMR4.
Þróttaravarpið
1-1 á Selfossi
Meistaraflokkur kvenna lék fyrri leik sinn gegn Selfossi í úrslitarimmu 1.deildar fyrr í dag. Leikurinn var spilaður á gervigrasvelli Selfyssinga og lauk honum með 1-1 jafntefli.
Selfoss náði forystunni í fyrri hálfleik en Margrét María Hómarsdóttir jafnaði fyrir Þrótt í þeim síðari. Það er því ljóst að síðari viðureignin, sem spiluð verður á Valbjarnarvelli á miðvikudag, verður æsispennandi.
Nánari umfjöllun um leikinn birtist á heimasíðunni á morgun.
Lifi Þróttur!
Ingvi bjargaði stigi í hús
Leikur Þróttar og ÍA fór fram í gærkvöld á Valbjarnarvelli. Leikurinn var bragðdaufur lengst af, en fjögur mörk voru þó skoruð. Liðin skiptu þeim bróðurlega á milli sín, en hetja kvöldsins var Ingvi Sveinsson sem tókst að jafna fyrir Þrótt, 2-2, í uppbótartíma. Meira má fræðast um leikinn hér að neðan.
Árgangamótið 25. september
Árlegt árgangamót Þróttar í fótbolta verður haldið laugardaginn 25.september. Undanfarin þrjú ár hefur verið um hörkumót að ræða og ekkert gefið eftir.
Mótið hefst stundvíslega kl 16.00 og stendur fram á kvöld og endar með verðlaunafahendingu og magnaðri grillveislu.
Fleiri greinar...
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL


