Stórsigur í síðasta deildarleiknum

 

IMG_1605
Þessi föngulegi hópur vann A-riðil 1.deildar

Þróttarar tóku á móti Völsungi í lokaleik A-riðils 1.deildar á laugardag. Þróttarar þurftu á sigri að halda til að vinna A-riðilinn og sigurinn lét ekki á sér standa. Þegar upp var staðið höfðu Þróttarar skorað ellefu mörk en andstæðingarnir ekkert. Frábær stórsigur í lokaleik riðilsins.

Vel heppnað strandblakmót Þróttar

Strandblak_2010
Skemmtunin var í fyrirrúmi á skemmtistrandblakmóti Þróttar um helgina.
Skemmtunin var í fyrirrúmi á Skemmtiblakmóti Þróttar sem fram fór um helgina. Fór mótið fram í Gufunesi. Allir sem vildu gátu skráð sig á mótið og mættu alls
12 lið til leiks, fjögur karlalið og átta kvennalið. Spilað var í ca. 4 tíma í flottu veðri á laugardeginum. Vindurinn setti þó strik í reikninginn við og við, en inn á milli var frábært strandblakveður. 

Soffía Ummarin valin í U19

soffia2010Þróttarinn Soffía Ummarin Kristinsdóttir hefur verið valin í 23 manna hóp U19 ára landsliðsins.

Valið kemur Þrótturum ekki á óvart enda hefur Soffía leikið frábærlega í sumar. Hún er búin að skora 19 mörk í 12 leikjum fyrir meistaraflokkinn sem tryggði sér efsta sæti A-riðils 1.deildar í gær.

Ólafur Þór Guðbjörnsson, landsliðsþjálfari U19 kvenna, valdi 23 leikmenn í undirbúningshóp fyrir undankeppni EM 2011. 18 leikmenn verða svo valdir til að leika fyrir Íslands hönd í undankeppni EM sem haldin verður í Búlgaríu í september.

Við óskum Soffíu góðs gengis á komandi landsliðsæfingum og vonumst að sjálfsögðu til að sjá hana í lokahópnum fyrir EM.

Sigurður Sveinbjörnsson fimmtugur í dag

Hrur_Bjarnason
Siggi Sveinbjörns hér ásamt Hödda Bjarna leikmanni mfl. karla
Sigurður Sveinbjörnsson er fimmtugur í dag.

Sigga þarf vart að kynna fyrir Þrótturum en hann hefur unnið mikið og óeigingjarnt starf fyrir félagið í gegnum tíðina.

Knattspyrnufélagið Þróttur óskar honum innilega til hamingju með daginn.

11-0 sigur og efsta sæti í A-riðli staðreynd!

IMG_0980
Þróttarar sigruðu A-riðil 1.deildar

Meistaraflokkur kvenna vann stórsigur á Völsungi í dag en lokatölur urðu 11-0. Sigurinn tryggir Þrótturum sigur í A-riðli 1.deildar.

Eftir úrslit dagsins er ljóst að Þróttur mætir Selfossi í úrslitakeppni 1.deildar en leikið verður næsta laugardag og svo miðvikudaginn þar á eftir.

Nánari umfjöllun um Völsungsleikinn birtist á heimasíðunni á morgun.

Lifi Þróttur!

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

You are here Forsíða