Leikur hjá stelpunum í meistaraflokki kvenna á laugardaginn

IMG_1605
Þessi mynd var tekinn eftir fyrri leikinn við Völsung á þessu ári

Nú á laugardaginn verður síðasti leikurinn hjá stelpunum okkar í meistaraflokki í sínum riðli í 1.deildinni. Þær eru nú þegar búnar að tryggja sér sæti í undanúrslitunum um sæti Pepsídeild kvenna á næsta ári og ef að þær vinna leikinn á laugardaginn þá vinna þær sinn riðil og spila við liðið sem að lendir í öðru sæti í hinum riðlinum í 1.deild.

Í hinum riðlinum eru það lið Selfoss og ÍBV sem að eru að berjast um að vinna riðilinn en á laugardaginn spila þessi lið innbyrðis út í Vestmannaeyjum og dugar Selfossi jafntefli til þess að vinna riðilinn en það skal enginn afskrifa stelpurnar í ÍBV.

Meira hér að neðan.

Jafntefli gegn Þór

dusan-ivkovic
Pínu hreyfð mynd. Dusan Ivkovic tekur við viðurkenningu sem maður leiksins úr hrömmum formanns meistaraflokksráðs karla, Bergi Þorkelssyni.
Þróttur tók á móti Þórsurum í gærkvöldi á Valbjarnarvelli. Um var að ræða leik í 17. umferð 1. deildar karla. Leikurinn var hinn ágætasta skemmtun og lauk með jafntefli 1-1. Hér að neðan má lesa stutta skýrslu um leikinn.

Mfl.Karla: Þróttur-Þór í kvöld

Fjlnir_-_rttur_163Meistaraflokkur Karla leikur gegn Þór Akureyri kl. 19:00 á Valbjarnarvelli í kvöld.

Hvetjum sem flesta til að mæta og styðja að afli Þrótt.

 

LIFI ÞRÓTTUR

Skemmtiblakmót Þróttar

strandblak_auglysing_copyNæst komandi laugardag, 21. ágúst (Menningarnótt) mun Blakdeild Þróttar standa fyrir skemmtiblakmóti á strandblaksvöllunum í Gufunesi. Keppt verður í tveim styrkleikaflokkum, annarsvegar fyrir byrjendur og hinsvegar fyrir lengra komna. Liðin skipa þrír leikmenn og er þátttökugjald 1500kr á hvern leikmann. Vegleikir vinningar í boði fyrir þá sem komast á verðlaunapall. Hægt er að skrá sig á www.strandblak.is. Nú er tækifærið fyrir þá sem hafa verið að sprikla í strandblaki í sumar að ljúka strandblaksumrinu með að taka þátt í þessu skemmtilega móti. Blakdeild Þróttar hvetur að sjálfsögðu alla Þróttara til að taka þátt og undirstrika mikilvægi íþróttarinnar innan félagsins.

Starfsmaður í félagshúsið óskast

Trottur_logo_2004_Skjar100x300Knattspyrnufélagið Þróttur óskar eftir starfsmanni í rúmlega hálft stöðugildi í félagshúsið.

 

JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

You are here Forsíða