Úrtökumót drengja Laugarvatni tveir frá Þrótti
13.08.10
Daði Bergsson og Sveinn Andri Bjartmarsson eru fulltrúar okkar á Úrtökumót drengja 2010 sem fer fram að Laugarvatni dagana 20.-22. ágúst næstkomandi. Á sjöunda tug drengja hafa verið boðaðir á úrtökumótið, allir fæddir 1995, og koma þeir frá félögum víðs vegar af landinu.
Til hamingju piltar og gangi ykkur vel.
Rey Cup 2011 20. – 24. júlí
11.08.10
Mótshaldarar eru afar ánægðir með hve vel tókst til með skipulag og framkvæmd Rey Cup 2010 og hafa bæði þátttakendur, fararstjórar og þjálfarar látið í ljós ánægju sína þar að lútandi.
Nú þegar er hafinn undirbúningur fyrir Rey Cup 2011 en þá verður knattspyrnuhátíðin haldin í tíunda skiptið en hún fór fyrst fram árið 2002.
Unnið verður að fjölgun erlendra þátttökuliða næstu fimm árin á grundvelli nýgerðs samnings við Reykjavíkurborg. Einnig er ráðgert að efla dómgæslumál á Rey Cup með aðkomu sérfróðra erlendra fagaðila á því sviði og í góðu samstarfi við KSÍ.
8.flk - Atlantismót á sunnudag!
09.08.10
Sæl öllsömul!
Við ætlum að taka þátt í Atlantismóti Aftureldingar nk. sunnudag (15.ágúst). Mótsgjald er 1.000 krónur á þátttakanda og verður leikið í 5 manna liðum líkt og á VÍS-mótinu fyrr í sumar. Mótið verður líklega spilað hálfan dag en allar nánari upplýsingar munu birtast á blogginu í vikunni.
Þar sem fyrirvarinn er stuttur viljum við biðja ykkur um að hafa hraðar hendur og skrá ykkur á mótið með athugasemd hér fyrir neðan sem allra fyrst ef þið hafið áhuga á að vera með. Í skráningunni verður að koma fram fullt nafn iðkanda og fæðingarár. Gott væri ef þið létuð þetta berast til þeirra sem þið þekkið í flokknum svo að enginn missi af fjörinu.
Kveðja,
Mist og Guðjón
Knattspyrnudeild Þróttar auglýsir eftir þjálfurum
Knattspyrnudeild Þróttar auglýsir eftir aðalþjálfurum fyrir yngri flokka félagsins keppnistímabilið 2010-2011.
Fleiri greinar...
Síða 10 af 148
Flýtihnappar
Fótbolti
Æfing í dag.
Lesa meira...
5.fl.kvk. Æfingar í vikunni.
Lesa meira...
Sigur á Suðurnesjum
Lesa meira...
4.flk - Styðjum meistaraflokk í úrslitaleiknum!
Lesa meira...
5.flk - Úrslitaleikur hjá mfl. kvenna
Lesa meira...
7.flk - Úrslitaleikur hjá meistaraflokki kvenna
Lesa meira...
Handbolti
Æfingar í vikunni.
Lesa meira...
Æfingar í vikunni.
Lesa meira...
4fl. kk Æfingaleikur vs Haukar!
Lesa meira...
Æfingagjöld í handboltanum haust 2010
Lesa meira...
5 flokkur karla, æfing
Lesa meira...
Handbolti, æfingar hefjast í dag hjá eftirtöldum flokkum!
Lesa meira...
Blak
Blakið fer af stað
Lesa meira...
Öldungamót BLÍ
Lesa meira...
Vel heppnað strandblakmót Þróttar
Lesa meira...
Skemmtiblakmót Þróttar
Lesa meira...
Strandblakmót Þróttar
Lesa meira...
Leifur nýr þjálfari
Lesa meira...










