Lið meistaraflokks kvenna lék gegn Stjörnustúlkum síðast liðinn miðvikudag í íþróttahúsi Stjörnunnar í Garðabæ. Leiknum lauk með sigri Stjörnunnar 3-0. Frekari upplýsingar um leikinn má nálgast hér að neðan.
Fyrsta hrinan byrjaði ágætlega, en síðan fór að syrta í álinn og fór hrinan 25-16 heimastúlkum í vil. Þróttur leiddi lengst af í annari hrinu, en stelpurnar voru klaufar að missa hana frá sér í lokin 25-22. Þriðja hrinan var einnig í járnum alla tíman, en Stjarnan hafði þar einnig sigur að lokum 25-22. Þróttarliðið lék oft ágætlega, en móttaka liðsins var á köflum ekki nægilega góð. Eins var sóknarleikurinn stundum bitlaus og of mikið um svo nefnda "gratis" bolta yfir netið, sem olli Stjörnustúlkum litlum vandræðum. Hildugunnur Magnúsdóttir var atkvæðamest í liði Þróttar og skoraði 12 stig. Næst kom Valdís Andrésdóttir með 8 stig. Stigahæst hjá Stjörnunni var fyrrum leikmaður Þróttar, Lilja Jónsdóttir, sem skoraði 13 stig. Lilja tók fram skóna á ný um áramótin og ákvað að söðla um og gekk til liðs við Stjörnuna.
Næsti leikur meistaraflokks kvenna verður nú á laugardaginn þegar liðið fer norður og mætir spútnikliði ársins KA. Strákarnir verða með í för og mæta toppliði KA. Ljóst er að fyrir dyrum stendur langt og strangt ferðalag norður og vonandi að Þróttarar sendi jákvæða strauma norður um helgina.

