Jón Ólafur útnefndur alþjóðlegur dómari

Blakarinn kunni Jón Ólafur Valdimarsson hefur loks hlotið viðurkenningu sem alþjóðlegur dómari á vegum alþjóða blaksambandsins, FIVB.

Jón Ólafur hefur dæmt fjölda leikja á alþjóðavettvangi, en fær loks formlega viðurkenningu sem alþjóðadómari. Jón Ólafur er annar Íslendinga til að vera útnefndur alþjóðadómari á vegum FIVB. Hinn er Leifur Harðason, sem ætti að vera flestum Þrótturum að góðu kunnur enda spilaði hann fyrir Þrótt lengi, þjálfari hjá félaginu og hefur dæmt á vegum þess undanfarin ár. Blakdeild Þróttar óskar Jón Ólafi, Jóla, til hamingju. Þess má geta að Jón Ólafur var nýlega ráðinn þjálfari meistaraflokka Hamars í Hveragerði. 

 

Athugasemdir (0)add comment

Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.

busy
You are here Blak > Almennt > Jón Ólafur útnefndur alþjóðlegur dómari