Íslandsmót yngri flokka
Mánudagur, 19. Apríl 2010 Skrifað af: Sigurlaugur Ingólfsson
Efri röð frá vinstri: Bárður, Ólafur, Björn. Í neðri röð frá vinstri Eldey, Gunnlaug og Skarphéðinn.
Allt eru þetta krakkar sem eru að stíga sín fyrstu skref í blakíþróttinni. Farið var af stað í haust með æfingar hjá yngsta aldursflokknum. Til að byrja með voru fáir að mæta á æfingar, en eftir áramót hefur mæting vaxið hröðum skrefum. Þess má geta að æfingarnar hafa verið ókeypis.
Keppt var eftir svo kölluðu krakkablaksreglum, 3. stig. Á því stigi þarf að taka á móti með blakslagi, en grípa verður bolta "tvö". Takist það er boltanum kastað upp í loftið og á annar leikmaður þá að ljúka sókninni með "smassi". Það er óhætt að fullyrða að krakkarnir sýndu oft glæsileg tilþrif og eiga þau flest glæsta framtíð í Þróttarbúningnum.
Uppáhald
Bókamerki
Senda með tölvupósti
Skoðað: 450
Athugasemdir (0)

Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.






