Íþróttaskólinn í Laugardal
Föstudagur, 07. Maí 2010 Skrifað af: Jakob Leó Bjarnason
Íþróttaskólinn í Laugardal verður að sjálfsögðu á sínum stað líkt og undanfarin sumur í útivistarparadís Reykjavíkur, Laugardalnum.
Athugið, sama verð í skólunum og síðasta ár, engar hækkanir.
Hægt að kaupa hálfsdags- eða heilsdagsnámskeið.
Nánar um skólana og skráningu hér að neðan !
Skráning í Fjölgreinaskólann
Skráning í Knattspyrnuskólann
Skráning í Fimleikaskólann
Til að sjá verð þarf að ýta á hnappana hér að ofan.
Fjölgreinaskólinn fyrir 6-10 ára
Heilsdags- eða hálfsdagsnámskeið fyrir börn fædd 2000-2004.
15 íþróttagreinar, útivist og leikur. Lögð er áhersla á að á hverju námskeiði kynnist barnið því hvernig sé að æfa viðkomandi íþróttagrein, svo sem knattspyrnu, sund, júdó, fimleika, handbolta, blak, tennis og frjálsar íþróttir. Heimsókn verður í fimleikasalinn, Fjölskyldu- og húsdýragarðinn, o.fl. eftir veðri og vindum. Námskeiðið endar með grillveislu.
Hægt er að kaupa heitan mat í hádeginu á vægu verði og þá er ókeypis gæsla frá kl. 8–9 og frá kl. 16–17.
20% afsláttur er veittur ef valin eru fleiri en eitt námskeið innan viðkomandi leiðar/skóla yfir sumarið. Einnig er veittur systkinaafsláttur af öðru gjaldinu.
Námskeið í boði
Námskeið 1. / 07.–11. júní (Vikunámskeið)
Námskeið 2. / 14.–25. júní (Tveggja vikna námskeið - frí 17. júní)
Námskeið 3. / 28. júní –9. júlí (Tveggja vikna námskeið)
Námskeið 4. / 26. júlí–6. ágúst (Tveggja vikna námskeið - frí 2. ágúst)
Námskeið 5. / 26. júlí – 6. ágúst (Tveggja vikna námskeið)
Námskeið 6. / 9. - 20. ágúst (Tveggja vikna námskeið)
Afsláttur
Veittur er 20% afsláttur af aukanámskeiðum innan sömu leiðar.
Afsláttur er ekki stigvaxandi, t.d. reiknast ekki systkinaafsláttur ofan á magnafslátt.
Nánari upplýsingar fást á netfanginu
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
.
Knattspyrnuskólinn fyrir 7-13 ára
Heilsdags eða hálfsdags vikunámskeið fyrir börn fædd á árunum 1997-2003 (þ.e. 7. fl, ,6. fl, 5.fl og yngra árið í 4.fl.).
Knattspyrnan er í aðalhlutverki frá 09:00-12:00 og er þá aðaláherslan lögð á grunntækni í knattspyrnu og knattspyrnuleikir.
Frá kl.13:00-16:00 er um almennt íþrótta- og leikjanámskeið að ræða. Námskeiðið endar með grillveislu.
NÁMSKEIÐ Í BOÐI
Námskeið 1. / 14. - 18. júní (4 dagar, frí 17. júní)
Námskeið 2. / 21. - 25. júní (Vikunámskeið)
Námskeið 3. / 28. júní.–2. júlí (Vikunámskeið)
Námskeið 4. / 5. - 9. júlí (Vikunámskeið)
Námskeið 5. / 12.–16. júlí (Vikunámskeið)
Námskeið 6. / 26. - 30. júlí (Vikunámskeið)
Námskeið 7. / 3. - 6. ágúst (4 dagar, frí 2. ágúst)
Námskeið 8. / 9. - 13. ágúst (Vikunámskeið)
Námskeið 9. / 16. - 20. ágúst (Vikunámskeið)
Afsláttur
Af fyrsta námskeiði er greitt 100% verð en 25% afsláttur veittur ef sama barn er skráð á fleiri en 1 námskeið innan knattspyrnuskólans. Systkinaafsláttur er 25% af öðru barni (fullt gjald reiknast af öðru systkininu), ef um þrjú systkini er að ræða er afslátturinn 50 % af þriðja systkininu.
Afsláttur er ekki stigvaxandi, t.d. reiknast ekki systkinaafsláttur ofan á magnafslátt.
Nánari upplýsingar fást á netfanginu
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
eða í síma 580-5903






