Forsíða > Blak > Almennt > Landsliðsfólkið okkar í eldlínunni á Möltu

Landsliðsfólkið okkar í eldlínunni á Möltu

Landslikvenna2010
Landsliðskonur Íslands bregða á leik. Fjóla Rut fyrir miðju og Ásthildur er næst til vinstri í efri röð.

Hún Fjóla Rut sendi okkur stutta ferðasögu af ævintýrum kvennalandsliðsins á Möltu nú um síðustu helgi. Þróttarar áttu þar tvo fulltrúa, Fjólu og hana Ásthildi, sem reyndar spilar nú í Danmörku. Strákarnir eru að fara nú um næstu helgi. Þróttarar eiga þar líka sína tvo fulltrúa. Reynsluboltinn Valur Guðjón Valsson er sem fyrr uppspilari liðsins og hinn ungi og efnilegi Hörður Páll Magnússon mun þar vonandi stíga sín fyrstu, af mörgum, landsliðssporum. Ferðasögu Fjólu má lesa hér að neðan.

 

Íslenska kvennalandsliðið í blaki tók þátt í Evrópumóti Smáþjóða nú á dögunum. Riðill Íslands var leikinn dagana 10.-14. júní á Möltu.

 Að þessu sinni var ein stúlka úr Þrótti valin í liðið, Fjóla Rut Svavarsdóttir, en hún hefur spilað með Þrótti allan sinn blakferil.  Einnig var leikmaður Þróttar síðustu ár, Ásthildur Gunnarsdóttir, valin í liðið, en hún er nú í námi erlendis og spilar því ekki með Þrótti næstu tímabil. Þær komu við sögu í öllum leikjum mótsins.

 Liðið spilaði 4 leiki í mótinu en í þetta skiptið töpuðust þeir allir. Þrír af þessum leikjum fóru í odda sem enduðu með aðeins tveggja stiga mun, en tæpara er ekki hægt að tapa blakleik. Úrslit mótsins eru því vægast sagt grátleg  en aðeins tvö efstu liðin komast áfram í úrslitakeppni Evrópumóts Smáþjóða.

 Með aðeins 5 stigum í viðbót á réttum stöðum í oddaleikjunum þremur hefðu íslensku stúlkurnar tryggt sér a.m.k annað sætið og af því er ljóst að tæpara gat þetta ekki verið en ljóst er að stúlkurnar eiga fullt erindi í hin liðin.

 Liðið er virkilega ungt þetta árið en 8 af 12 leikmönnum liðsins eru 21 árs eða yngri. Liðið er því gríðarlega efnilegt og verður gaman að sjá hvað gerist eftir nokkur ár.

 Næsta fimmtudag heldur karlalið Íslands til Möltu og verða tveir Þróttarar í liðinu, þeir Hörður Páll Magnússon  og Valur Guðjón Valsson. Þjálfari liðins er Michael Overhage sem jafnframt hefur verið þjálfari meistaraflokka Þróttar síðustu ár.

 

Meira um leikina má lesa á www.volleyball.is og www.bli.is

Athugasemdir (0)add comment

Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.

busy
<<  Sep 10  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930