Leifur nýr þjálfari

Hinn reyndi leikmaður, þjálfari og dómari Leifur Harðarson mun þjálfa lið meistaraflokka Þróttar á næsta ári, bæði karla og kvenna. Það þarf ekki að kynna Leif fyrir Þrótturum. Allir Þróttarar ættu að þekkja til Leifs. Leifur þjálfari meistarflokk karla tímabilið 1991-1992 og aftur frá 1994 til 1999. Undir hans stjórn vann Þróttur Íslandsmeistaratitilinn fjórum sinnum, 1996, 1997, 1998 og 1999. Leifur er einnig lang leikjahæsti leikmaður meistaraflokks karla, með 556 leiki. Þetta er mikill fengur fyrir deildina okkar að fá Leif aftur til starfa. Um leið viljum við þakka Micha Overhage fyrir hans frábæra framlag til félagsins Danke Schöne Micha!

Athugasemdir (0)add comment

Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.

busy
You are here Blak > Almennt > Leifur nýr þjálfari