Frábæru Rey Cup móti lokið í Laugardalnum...
Mánudagur, 26. Júlí 2010 Skrifað af: Jórunn Frímannsdóttir
Nú er okkar árlega Rey Cup móti lokið og er óhætt að segja að mótið hafi gengið vel. Þróttarar stóðu sig með stakri prýði og voru öll lið Þróttar til mikillar fyrirmyndar og félaginu til sóma. Að þessu sinni náðum við einum bikar í hús, en strákarnir í 4.flokki C fengu gullið og bikar. Önnur verðlaun Þróttar voru:
í 4.flokki B urðu strákarnir í 3.sæti, í 3.flokki B urðu strákarnir í 2.sæti og í 3.sæti í 3.flokki A. Stelpurnar í 3.flokki fengu svo háttvísiverðlaun.
Það voru um 1200 börn sem léku knattspyrnu og skemmtu sér í dalnum síðustu daga, kynntust fullt af krökkum frá öllu landinu og öðrum löndum líka. Þessi börn eru reynslunni ríkari og munu ´vonandi búa að góðum minningum til framtíðar.
Hundruðir sjálfboðaliða lögðu fram vinnu við mótið og vil ég þakka þeim kærlega fyrir þeirra ómetanlega framlag til félagsins og íþrótta- og forvarnarstarfs í landinu.
Ég er þess fullviss að bæði börn og fullorðnir hafi skemmt sér vel :-)
Lifi Þróttur!
Með góðri Þróttarkveðju,
Jórunn Frímannsdóttir






