Forsíða > Fótbolti > 7. flokkur kvenna > 7.fl kvk: Upplýsingar fyrir Pæjumót 2010!

7.fl kvk: Upplýsingar fyrir Pæjumót 2010!

Pæjumót – greiða mótskostnað fyrir 3.ágúst

Kæru foreldrar stúlkna í 7.flokki sem ætla á Pæjumót á Siglufirði 5. til 8. ágúst 2010.

Nú er komið að því að greiða afganginn af gjaldinu.  Það voru flestir búnir að greiða 3.000 og nú þurfa allir að greiða 11.000 krónur. Þær stelpur sem seldu boxin og sápurnar og eiga pening inni á reikningnum hjá Hrafnhildi draga inneignina frá og leggja afganginn inn á reikning flokksins 0101-05-260693 kt. 110863-2339. Munið að setja nafn stelpunnar sem skýringu. Ef þið munið ekki hversu há inneignin er getið þið haft samband við Hrafnhildi Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

Inni í þessum 14.000 krónum er mótsgjald og staðfestingargjald 11.000 og svo kemur annar kostnaður þar ofaná svo sem kostnaður við þjálfara og glaðningur til stelpnanna á laugardagskvöldinu.

 

Leikir hefjast að morgni föstudagsins 6. ágúst og mótsslit eru sunnudaginn 8. ágúst kl.16:00.

Boðið er uppá gistingu í ýmsum húsum bæjarins og þurfa keppendur að koma með dýnur og svefnpoka með sér.

Eins og staðan er núna er 21 stelpa búin að skrá sig en það er ekki of seint að skrá fleiri stelpur. Við verðum með þrjú lið, eitt A lið og tvö B lið.

Til að allt gangi vel með stelpurnar þurfa foreldrar að hjálpast að og ganga í eftirfarandi störf:

  • Tveir foreldrar þurfa að sofa með stelpunum á hverri nóttu (nóg að bjóða sig fram eina nótt)
  • Það þarf þrjá liðsstjóra hvern dag (hægt að bjóða sig fram hálfan daginn líka t.d. laugardagsmorgun eða laugardagseftirmiðdag).

Okkur í foreldraráðinu þætti vænt um ef þið munduð bjóða ykkur fram með því að senda póst á Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. sem fyrst og við sjáum um að raða niður á vaktir.

 

Það kostar 1000 krónur að vera á tjaldsvæðinu alla helgina. Við Þróttarar höfum undanfarin ár verið á túninu hjá Þormóði Ramma en það er við hliðina á Olís og staðsett miðsvæðis.  Þar verðum við með stórt matartjald þar sem öll fjöskyldan borðar alla helgina og borga aðeins 14 ára og eldri vægt verð (var 2000 í fyrra og líklega sama í ár) fyrir alla helgina.  Þar er heitur matur á föstudags og laugardagskvöldinu.  Þess á milli er brauð, morgunkorn, ávextir, kex, safi og þess háttar.  Allir ættu að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.  Matarnefndin mun senda út póst um skráningu í matartjaldið þegar nær dregur. Allir þurfa að hjálpast að í matartjaldinu og koma upp skráningarblöð á vaktir þegar við komum til Siglufjarðar. Það þarf líka að hjálpast að við að koma tjaldinu upp á fimmtudag og taka það saman á sunnudag.

 

Það vantar líka einhvern til að draga kerruna með Þróttaratjaldinu, ef þið eruð á bíl með krók en eruð ekki að draga neitt hafið þá endilega samband við okkur.

 

Endilega hafið samband ef ykkur vantar frekari upplýsingar.

 

Foreldraráð 7. flokks kvenna

 

Dagskrá Pæjumóts TM 2010 á Sigló

Fimmtudagur 5. Ágúst

18:00-22:00 Stúlkurnar mæta á náttstað, ath. að ekki er leyfilegt að koma seinna en kl 22, þær stúlkur sem koma eftir það verða að gista með foreldrum.

Föstudagurinn 6. ágúst
07:00-10:00 Morgunmatur í Allanum
09:00-18:00 Leikir samkvæmt leikjaplani
12:00-14:00 Vallarnesti fyrir keppendur
Leikhópurinn Lotta sýnir leikrit á Hólssvæðinu
16:30-18:45 Kvöldverður á Allanu
19:00 KS/LEIFTUR-BOLUNGARVÍK 2.deild karla

Happadrætti í hálfleik – tvær stúlkur verða dregnar úr þátttakendalistanum og fá báðar  ferð fyrir tvo á leik í ensku úrvalsdeildinni.

21:00 – ????   Ingó skemmtir eftir m.fl. leikinn
22:00-23:00 Móttaka í Síldarminnjasafninu, tveir fulltrúar frá hverju liði

Laugardagur 7. ágúst
07:00-10:00 Morgunmatur í Allanum
08:30-19:00 Leikir samkvæmt leikjaplani
12:00-14:00 Vallarnesti fyrir keppendur
16:30-19:45 Kvöldverður á Allanum
20:00-22:00 Skemmtidagskrá á Torginu.

Jóhanna Guðrún, Jógvan og Vignir skemmta keppendum og mótsgestum.

Sunnudagur 8. ágúst
07:00-09:00 Morgunmatur í Allanum
08:30-15:30 Leikir samkvæmt leikjaplani
12:00-14:00 Grillað
16:00 Áætluð mótsslit

 

ALMENNAR UPPLÝSINGAR

 

* HUNDAR ERU BANNAÐIR Á MÓTSSVÆÐINU. Hundaeigendum er bent á opið svæði vestan     megin Hólsá sem ætluð er hundum. 

* Engin fararstjórafundur verður haldin, ábendingum/kvörtunum skal koma til Mótsstjóra Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.

* Leikjaplan allra liða verður komið á heimasíðuna mánudaginn 2. ágúst.

* Mótsmappa verður komin á heimasíðuna mánudaginn 2. ágúst.

* Mótsblað með öllum upplýsingum verður hægt að nálgast á KS-skrifstofuna allt mótið.

* Armbönd verða mismunandi að lit, eftir því hvort keppandi er leikmaður í A-B-C eða D.

 

DÓT MEÐ:

 

Þó að allir séu vanir ferðamenn er rétt að minna á að hver og ein þarf að koma með:

Ø  Svefnpoki/sæng.

Ø  Koddi.

Ø  Dýna – vindsæng (ekki þunnar tjalddýnur).

Ø  Handklæði.

Ø  Sundföt.

Ø  Félagsgallinn (Þróttaragallinn).

Ø  Tannbursti – tannkrem

Ø  Auka skór.

Ø  Hlý föt: vettlingar – húfa - hlý peysa – regnfatnað.

Ø  Auka föt (föt fyrir 3 daga): sokkar – buxur – nærföt – peysur.

Ø  Fótboltadót: takkaskór – legghlífar – stuttbuxur – sokkar – Þróttaratreyju ef þær eiga – hárband/teygju! –innanundirbolur.

Ø  Vatnsbrúsi.

Ø   Dót til að dunda með t.d bækur – myndablöð – spil – tafl ofl.

Ø  Og að sjálfsögðu:  Góða skapið og bros á vör.

 

Látið stelpurnar fylgjast með þegar pakkað er niður svo þær viti hvað þær eru með og hvar dótið er.  Merkið öll föt og svefnpoka.

 

Það sem á ekki að hafa með:

Ø  Nammi.

Ø  GSM síma og Ipoda. – Það má alltaf hafa samband við liðstjóra.

Ø  Boltar eru bannaðir í skólanum

Ø  Bögg og leiðindi.

LIFI Þróttur!

ATH!

Þær stelpur sem eru skráðar á mótið eru:

Berghildur Bernódusdóttir
Ísabella Erna Hreiðarsdóttir

Ísabella Svavarsdóttir

Magdalena Matsdóttir
Nína Mijnen
Sara Júlíusdóttir
Sif Þórsdóttir
Sunna Móey Ásmundsdóttir
Anna Alexandra Petersen
Kolbrún Sara Haraldsdóttir
Andrea Rut Bjarnadóttir
Birta Birgisdóttir
Cecilía Rán Rúnarsdóttir
Dagmar Kaldal
Elín Dagmar Jacobsen
Margrét Harpa Benjamínsdóttir
Rakel Unnsteinsdóttir
Soffía Pétursdóttir
Soffía Sól Andrésdóttir
Steinunn Glóey Höskuldsdóttir
Tinna Rún Jónasdóttir

Þórey Kjartansdóttir??

 

kveðja, Foreldraráð 7.flk kvk.

Athugasemdir (0)add comment

Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.

busy
7. flokkur kvenna

Æfingatafla - 01.06.10-01.09.10

Mánudagar

16:15-17:15 - Þríhyrningur


Þriðjudagar

16:15-17:15 - Þríhyrningur


Fimmtudagar

16:15-17:15 - Þríhyrningur

*Þríhyrningur er grassvæði á milli Skautahallarinnar og Gervigrassins.

 

Þjálfarar:
Valgerður Jóhannsdóttir - valgerdurjo@gmail.com - s. 695-9912

Flokksráð:
Eldra ár:
Bernódus (pabbi Berghildar): bernodus.kristinsson@landsbanki.is
Svavar (pabbi Ísabellu S): svavar@augnablikk.is
Ásmundur (pabbi Sunnu Móeyjar): asigisla@gmail.com

Yngra ár:
Rúnar (pabbi Cecilíu): runar@virkjun.is
Hrafnhildur (mamma Andreu): bjarnigretars@simnet.is
Hafdís (mamma Soffíu P): hafdisgudrun@laugarnesskoli.is
Úlfar (pabbi Elínar): ulfar@iod.is
Annað:
Námsskrá flokksins er hér: Skipulag Þjálfunar
Ársáætlun 7.flokks kvenna 2009-2010 má sjá hér: Ársáætlun 2010
 
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
Borði
<<  Sep 10  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930