Forsíða > Fótbolti > Meistaraflokkur karla > Þróttur með góðan sigur fyrir austan.

Þróttur með góðan sigur fyrir austan.

Jæja gott fólk.  Því miður var smá vesen með flugið mitt austur í gær, þannig að ég náði ekki nema síðasta hálftímanum af leiknum.  Það gerðist mjög lítið þennan síðasta hálftíma, og því fátt fyrir mig að skrifa um.

Leikurinn byrjaði þó fjörlega, og Drési kom okkar mönnum yfir strax á annari mínútu eftir hornspyrnu.  Það var svo um koreteri síðar að Þróttarar fengu aðra hornspyrnu, og í þetta skiptið fékk Dusan boltann og skallaði hann í fjærhornið.

Fjarðarbyggðar menn létu það þó ekki á sig fá og eftir um það bil hálftíma leik skoraði Sveinbjörn Jónasson með góðu skoti.  Þróttarar voru samt ekki af baki dottnir og Höddi slapp einn inn fyrir vörn Fjarðarbyggðar og setti boltann af öryggi í markið. Fjarðarbyggðarmenn vildu meina að um rangstöðu hefði verið að ræða, en þar sem ég var um það bil að keyra út af Egilsstöðum á þessum tíma, get ég ekki sagt til um hvort það hafi verið rétt.  Staðan orðin 3-1 fyrir Þróttara, og þannig var hún í hálfleik.

Í seinni hálfleiknum reyndu Þróttarar að halda boltanum og minnka tempóið í leiknum.  Það tókst ágætlega miðað við það sem ég sá, en Fjarðarbyggð sóttu engu að síður meira í seinni hálfleiknum.  Þróttarar vörðust þó vel og beittu góðum skyndisóknum. 

Heilt yfir var þetta því góður sigur okkar manna, og gríðarlega mikilvæg þrjú stig í safnið.  Nú erum við búnir að vinna tvo leiki í röð, og ég hef trú á að þetta sé að detta í gang miðað við spilamennskuna sem ég hef séð í síðustu tveim leikjum. Næsti leikur er í Laugardalnum á fimmtudaginn.  Þá koma Fjölnismenn í heimsókn, og við þurfum að mæta og hverja strákana.  Þetta lítur strax betur út hjá liðinu, og næsti leikur er mikilvægur, eins og reyndar allir þeir leikir sem eftir eru. 

Sjáumst eldhress í Dalnum á fimmtudaginn eftir viku.

LIFI ÞRÓTTUR!!!! 

 

Athugasemdir (1)add comment

gestur said:

0
...
Glæsilegt, til hamingju. Og aftur er það góður fyrri hálfleikur sem gerir gæfumuninn.
Áfarm Þróttur, Sveinbjörn Þ.
30. júl, 2010

Skrifa athugasemd
Þessum pósti hefur verið læst. Ekki er lengur hægt að gera athugasemdir.

busy
<<  Sep 10  >>
 Su  Má  Þr  Mi  Fi  Fö  La 
     1  2  3  4
  5  6  7  8  91011
12131415161718
19202122232425
2627282930