Sala á íþróttafatnaði merktum Þrótti hefur verið á nokkrum stöðum og mismunandi söluaðferðir eftir deildum.
Knattspyrnudeild tók þá ákvörðun árið 2008 að skipta um umboðsaðili og var nýr fatnaður tekinn í notkun núna í maí 2009. Fatnaðurinn er frá ítalska fyrirtækinu errea og er hann seldur hjá Jóa Útherja í Ármúla 36, sími 588 1560. Þeir eru með allar helstu flíkurnar s.s. keppnistreyju, regngalla, æfingapeysu, sokka, stuttbuxur osfrv. Einnig er hægt að kaupa fatnaðinn á vefverslun errea með því að smella hér.
Ekki er krafa um að iðkendur kaupi allan fatnaðinn en afar æskilegt er að iðkendur eigi keppnistreyju, sokka og stuttbuxur. Hægt er að nálgast frekari upplýsingar um söluaðila á www.joiutherji.is og www.errea.is
Handknattleiksdeild tók þá ákvörðun árið 2009 að færa sig yfir í errea og verður hægt að nálgast þeirra vörur einnig í Jóa Útherja og þá er eru vörurnar einnig væntanlegar á vefverslun errea.
Blakdeild hefur hefur ekki verið með sérstaka sölu á íþróttafatnaði.