Landsliðshópur Íslands í strandblaki hefur verið valinn, en framundan er úrtökumót fyrir ólympíuleikanna í London 2012. Úrtökumótið fer fram 15.-17. október n.k. á Kýpur. Karl Sigurðsson er landsliðsþjálfari bæði karla- og kvennalandliðsins. Þróttarar eiga tvo fulltrúa í sitt hvoru liðinu. Gamla brýnið Guðmundur P. Guðmundsson, eða bara Gummi, hefur verið valinn í karlalandsliðið og Fjóla Rut Svavarsdóttir í kvennaliðið. Strandblak er íþrótt sem fer örtvaxandi á Íslandi. Reglur eru svipaðar og í hefðbundnu blaki, með undantekningum þó. Í strandblaki eru jafnan tveir saman í liði og umgjörðin er einnig ólík, enda keppt utandyra og á sandvöllum. Blakdeild Þróttar óskar þeim til hamingju með að vera valinn í landslið Íslands í strandblaki.
Þróttarar valdir í strandblaklandslið Íslands
Byrjendablak
Blak er örvaxandi íþrótt meðal fólks 30 ára og eldri. Blakdeild Þróttar mun bjóða upp á byrjendablak fyrir þennan aldurshóp á þriðjudögum í vetur í Íþróttahúsi Laugarnesskóla kl. 19:00. Byrjendablak er hugsað fyrir bæði kynin og allan aldur. Æfingar hefjast á morgun. Frekari upplýsingar veitir Sigurlaugur Ingólfsson (
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
).
Blakið fer af stað
Blaktímabilið hefst af krafti í næstu viku. Þeir sem hafa áhuga á að prófa þessu skemmtilegu íþrótt geta haft samband við formann deildarinnar, Sigurlaug, á veffanginu Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpósts þjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .
Annars mun Þróttar bjóða upp á æfingar í eftirfarandi flokkum.
Meistaraflokkur kvenna
Meistaraflokkur karla
Meistaraflokkur kvenna 2
Meistaraflokkur karla 2
3. flokkur kvenna
6. flokkur blandaður.
Öldungamót BLÍ
Einn stærsti viðburður í íslensku blaki er árlegt Öldungamót Blaksambands Íslands. Mótið verður að þessu sinni haldið í Vestmannaeyjum og að mótinu standa Blakdeild Þróttar í samstarfi við ÍBV. Blakdeildin hefur nú opnað heimasíðu mótsins, sem ber titilinn, til bráðabirgða, www.oldungur2011.trottur.is. Þar verður hægt að nálgast ýmsar upplýsingar um mótið í fyllingu tímans. Þróttur hélt Öldungamótið síðast árið 2000. Mótið hefur stækkað ört síðustu ár og er því von á miklum fjölda blakara til eyja næsta vor, en mótið fer fram 5.-7. maí.
Vel heppnað strandblakmót Þróttar
Skemmtunin var í fyrirrúmi á Skemmtiblakmóti Þróttar sem fram fór um helgina. Fór mótið fram í Gufunesi. Allir sem vildu gátu skráð sig á mótið og mættu alls
12 lið til leiks, fjögur karlalið og átta kvennalið. Spilað var í ca. 4 tíma í flottu veðri á laugardeginum. Vindurinn setti þó strik í reikninginn við og við, en inn á milli var frábært strandblakveður.
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL
