Þá er komið að næsta þætti í Þróttaravarpinu sívinsæla. Að þessu sinni fá stelpurnar að njóta sín. Svipmyndir úr seinni leik Þróttar og Selfoss, sem fram fór 1. september, eru nú aðgengilegar hér: http://www.youtube.com/watch?v=fJiGNjTIK-U Fyrir þá sem ekki komust á leik Njarðvíkur og Þróttar í 1. deild karla þá er ekki að örvænta. Svipmyndir úr þeim leik eru hér: http://www.youtube.com/watch?v=WKMrqdD1FNI
4.fl.kk - Æfing fimmtudag og svo Úrslitakeppni C liða.
Jæja strákar
Þó að það hefur hægst á þessu hjá okkur þá er eitt stórt verkefni eftir og verður það næstu helgi, því þá verður "Úrslitakeppni C liða" og þar erum við. En C liðið okkar er búið að vinna öll mót sem að það hefur tekið þátt í. Þarna munum við mæta Fjölni, Fjölni 2 og svo ÍBV.
Leikirnir verða eins og hér segir:
- föst 10.sept Þróttur - Fjölnir 2 kl 17:00 (Suðurlandsbraut)
- laug 11.sept Þróttur - ÍBV kl 12:00 (Suðurlandsbraut)
- sun 12.sept Þróttur - Fjölnir kl 14:00 (Suðurlandsbraut)
Nú er mikilvægt að allir mæti á æfinguna á morgun (fimmtudag). En æfingin er kl 15:00 hjá öllum, mætið niður á gervigras og við sjáum til hvort að við getum ekki verið á grasi en það kemur í ljós.
Einnig erum við félagarnir ásamt sérlegum aðstoðarmanni, farnir að skipuleggja eitthvað lokadæmi á þetta allt en nánar um það síðar.
Lifi Þróttur
8.flk - Lokaæfingin. Foreldrabolti og grill!
Nú fer tímabilið að klárast hjá okkur í 8.flokki en síðasta æfingin verður þarnæsta fimmtudag (16.september).
Þá er ætlunin að hafa foreldraæfingu þar sem foreldrar taka þátt í æfingunni með okkur.
Eftir æfinguna er hugmyndin að grilla pylsur í Félagshúsi Þróttar. Pylsur og svali verða á 200 krónur á mann og við biðjum ykkur um að skrá ykkur í fjörið með því að kvitta hér fyrir neðan. Þar þarf að taka fram nafn iðkanda og hversu margir ætla að vera með í grillinu (svo að við getum áætlað fjöldann og farið í innkaupaleiðangur).
Kveðja,
Guðjón, Mist, Gréta og Solla.
JPAGE_CURRENT_OF_TOTAL

