Stefnumál

Stefnumótun Þróttar

Leiðarljós Þróttar

Þróttarar, með gleðina að vopni, ætla að keppa við þá fremstu á Íslandi í þeim greinum sem félagið leggur aðaláherslur á.

Þróttur stefnir á að verða fremsta íþróttafélag í Reykjavík þegar kemur að fagmennsku í starfsemi íþróttafélaga.
Þróttur er fyrir samfélagið í Laugardal, Höfða- og Vogbyggð sem veitir því þjónustu til að ala upp börn og unglinga við faglegar og heilbrigðar aðstæður.

  1. Barna– og unglingastarfið er mikilvægasti þáttur félagsins og skal aðaláhersla félagsins ætíð huga að uppeldisstarfi félagsins.
  2. Þróttur skal stunda afrekstarf sem tekur við- og mið af barna- og unglingastarfi félagsins. Meistaraflokkar Þróttar eru mikilvægasta starfsemi afreksstefnunnar.
  3. Ávallt skal hlúa vel að og fjárfesta í innviðum félagsins þ.e. starfsfólki, aðstöðu og skal miðlægt halda utan um alla þekkingu félagsins svo hún glatist ekki.
  4. Félagið skal leggja metnað í að ráða til sín færustu þjálfara sem völ er á og að viðhalda þekkingu allrar þjálfunar innan félagsins.
  5. Félagið skal setja sér stefnu þegar kemur að íþróttafræðum, námsskrám og gagnaöflun til að tryggja framfarir í starfsemi félagsins.
  6. Félagið skal setja sér stefnu um skipulag sjálfboðaliða og tryggja þátttöku þeirra í verkefnum á vegum félagsins.
  7. Fjárhagsleg sjálfbærni skal ávallt höfð að leiðarljósi við ákvörðunartöku innan félagsins. Tryggja þarf öflugt samstarf við fyrirtæki til að styrkja fjárhagslegan grunn félagsins.
  8. Tryggja skal jákvæðan sýnileika félagsins.
  9. Mæla skal árangur og ánægju innan félagsins. Setja skal félaginu mælanleg markmið í allri starfsemi þess.
  10. Gegnsæi skal haft að leiðarljósi í allri starfsemi félagsins til að tryggja traust allra til félagsins og jákvætt viðhorf til þess.

Stefnuþríhyrningur Þróttar

Komdu að æfa með Þrótti