Styrktu félagið og fáðu skattafslátt
Okkur langar að minna á að velunnarar Þróttar geta fengið endurgreiðslu frá skatti ef þeir styrkja félagið.
Einstaklingar geta því styrkt Þrótt um allt að 350.000 kr en að lágmarki 10.000 kr á ári sem er frádráttarbært frá skattskyldum tekjum.
Nánar hér: RSK.IS
Fyrirtæki geta líka fengið skattaafslátt vegna styrkja. Fyrirtækjum er heimilt að draga frá skattstofni allt að 1,5% af rekstrartekjum.
Miðað er við algengustu skattprósentu lögaðila, þ.e. 20%.
Dæmi: Fyrirtæki sem styrkir Þrótt um 500.000 kr getur lækkað tekjuskattinn sinn um 100.000 kr. Fyrirtækið greiðir þannig í raun 400.000 kr fyrir 500.000 kr styrk til Þróttar.
Nánar hér: RSK.IS
Svona gengur ferlið fyrir sig.
Þú millifærir upphæð að eigin vali að lágmarki 10.000 kr inn á þá deild sem þú vilt styrkja hjá Þrótti.
Aðalstjórn: 0563-26-2903, kt. 480169-0699
Frjálsar: 0536-26-7601, kt. 681293-3379
Hjólreiðar: 0546-26-4302, kt. 430215-1240
Karate: 0537-26-1679, kt. 590297-2679
Körfubolti: 0536-26-263, kt. 630692-2109
Fótbolti: 130-26-410410, kt. 410284-1389
Kraftlyftingar: 0130-26-90909, kt. 530309-0100
Skák: 0322-26-4664, kt. 561112-1770
Skíði: 0130-26-411100, kt. 550483-0259
Sund: 0322-26-001429, kt. 430591-1429
Taekwondo: 0130-26-11369, kt. 541010-0840
Þríþraut: 0322-26-1421, kt. 601217-2280
Rafíþróttir: 0537-26-7514, kt. 500921-1290
Síðan þarf að senda tölvupóst með eftirfarandi upplýsingum á
trottur@trottur.is
- Nafn greiðanda
- Kennitala greiðanda
- Fjárhæð framlags
- Hvaða deild er verið að styrkja
- Greiðsludagur
Þróttur mun senda kvittun til baka á greiðanda þar sem kemur fram nafn og kennitala greiðanda og fjárhæð framlags. Við munum sömuleiðis koma upplýsingum um styrki til Skattsins, sem kemur skattaafslættinum til skila til þín.
Við hjá Þrótti sendum þakkir til allra þeirra sem hafa stutt okkur ómetanlega í gegnum tíðina.