Áskatla Eyjólfsdóttir og Sigríður Lára Sæmundsdóttir eru þessa dagana staddar í verkefni með U15 ára landsliði Íslands á sterku UEFA Development móti á Spáni. Þær léku sínar fyrstu landsleiki í vikunni gegn Spáni en Áskatla lék 83 mínútur í 0-4 tapi og Sigríður Lára kom inn á þegar hálftími var eftir. Þær léku svo báðar í grátlegu tapi gegn Belgum í vítaspyrnukeppni í gær.
Þetta eru fyrstu landsleikir þeirra sem er stór áfangi fyrir stelpurnar og Þrótt. Þær munu spila einn leik til viðbótar í ferðinni á laugardaginn kemur.
Innilega til hamingju.
