Aron Mikael skrifar undir sinn fyrsta samning

Aron Mikael Vilmarsson hefur skrifað undir sinn fyrsta samning við Þrótt og gildir samningurinn út 2029. Aron Mikael er miðjumaður og hefur hann leikið upp alla yngri flokka hjá félaginu og hefur hann leikið með 2. flokki félagsins.

Hann á þrjá landsleiki að baki með U15 ára landsliði Íslands og hefur verið reglulegur gestur í æfingahópum landsliðsins. Þetta sýnir öflugt og kraftmikið starf í yngri flokkum félagsins og er viðurkenning fyrir starfið í heild sinni.

Aron hefur sömuleiðis komið að þjálfun hjá félaginu og sýnt góða framkomu og verið góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur. 

Meira í fréttum

Komdu að æfa með Þrótti