Inngangur
Einstaklingum líður betur í umhverfi þar sem jafnrétti ríkir. Þar sem kynjamisrétti fær að skjóta rótum eru oft ríkjandi aðrir fordómar sem t.d. tengjast uppruna eða aldri. Hugmyndir um það hvað sé við hæfi að stelpur geri annars vegar og strákar hins vegar eru hamlandi. Þar sem raunverulegt jafnrétti ríkir fá allir einstaklingar að njóta sín og blómstra.
Knattspyrnufélagið Þróttur stuðlar að jöfnum tækifærum sinna félagsmanna og mismunar ekki vegna kynferðis, uppruna, kynhneigðar, kynvitundar, aldurs, fötlunar, þjóðernis, trúarbragða, skoðana, litarháttar eða annarrar stöðu. Íþróttafélagið leggur áherslu á gagnkvæma virðingu í öllu starfi. Niðurlægjandi framkoma svo sem einelti, ofbeldi, kynferðisleg áreitni, illt umtal og ósæmilegar vígsluathafnir er ekki liðin innan félagsins.
Reykjavíkurborg leggur áherslu á, í mannréttindastefnu sinni, að allt uppeldis- og tómstundastarf, menntun og fræðsla skuli hafa jafna stöðu kynjanna að leiðarljósi. Styrkja skuli jákvæð samskipti og gagnkvæma virðingu kynjanna í öllu starfi með börnum og unglingum og þau hvött til að rækta hæfileika sína og persónuþroska án hamlandi áhrifa hefðbundinna kynjaímynda.
Í 23. grein laga um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla nr. 10 frá 2008 kemur fram að kynjasamþættingar skuli gætt við alla stefnumótun þar á meðal í íþrótta- og tómstundastarfi.
Reykjavíkurborg hefur sett inn í þjónustusamning sinn við Þrótt að félagið skuli hafa virka jafnréttisstefnu og gæta þess í öllu starfi að taka tillit til beggja kynja.
Knattspyrnufélagið Þróttur hefur nú í samstarfi við ÍBR unnið jafnréttisstefnu og mun fylgja henni eftir samanber þjónustusamning við Reykjavíkurborg og ÍBR. Jafnréttisstefnan nær til iðkenda, þjálfara, stjórna og starfsfólks. Stefnan gildir í allri starfsemi félagsins. Stefnan er endurskoðuð og lagfærð er þurfa þykir í kjölfar skila á greinargerð um framkvæmd hennar. ÍBR kallar eftir jafnréttisstefnu og framkvæmd hennar frá Þrótti jafnhliða skilum ársreikninga. ÍBR mun veita ráðgjöf og stuðning varðandi erfið mál m.a. einelti og kynferðislega áreitni.
1. Iðkendur
Íþróttir skipa stóran sess í uppvexti margra barna. Íþróttir stuðla að sterkri sjálfsmynd einstaklingsins, heilbrigðum lífsstíl og almennri vellíðan. Í íþróttum setja iðkendur sér markmið og fylgja þeim eftir með góðri skipulagningu og leiðsögn. Með íþróttaþjálfun byggjum við upp öfluga einstaklinga sem fara af stað út í lífið með gott veganesti sem stuðlar að hreysti og heilbrigði.