Leiðarljós Þróttar
Þróttarar, með gleðina að vopni, ætla að keppa við þá fremstu á Íslandi í þeim greinum sem félagið leggur aðaláherslur á.
Þróttur stefnir á að verða fremsta íþróttafélag í Reykjavík þegar kemur að fagmennsku í starfsemi íþróttafélaga.
Þróttur er fyrir samfélagið í Laugardal, Höfða- og Vogbyggð sem veitir því þjónustu til að ala upp börn og unglinga við faglegar og heilbrigðar aðstæður.
- Barna– og unglingastarfið er mikilvægasti þáttur félagsins og skal aðaláhersla félagsins ætíð huga að uppeldisstarfi félagsins.
- Þróttur skal stunda afrekstarf sem tekur við- og mið af barna- og unglingastarfi félagsins. Meistaraflokkar Þróttar eru mikilvægasta starfsemi afreksstefnunnar.
- Ávallt skal hlúa vel að og fjárfesta í innviðum félagsins þ.e. starfsfólki, aðstöðu og skal miðlægt halda utan um alla þekkingu félagsins svo hún glatist ekki.
- Félagið skal leggja metnað í að ráða til sín færustu þjálfara sem völ er á og að viðhalda þekkingu allrar þjálfunar innan félagsins.
- Félagið skal setja sér stefnu þegar kemur að íþróttafræðum, námsskrám og gagnaöflun til að tryggja framfarir í starfsemi félagsins.
- Félagið skal setja sér stefnu um skipulag sjálfboðaliða og tryggja þátttöku þeirra í verkefnum á vegum félagsins.
- Fjárhagsleg sjálfbærni skal ávallt höfð að leiðarljósi við ákvörðunartöku innan félagsins. Tryggja þarf öflugt samstarf við fyrirtæki til að styrkja fjárhagslegan grunn félagsins.
- Tryggja skal jákvæðan sýnileika félagsins.
- Mæla skal árangur og ánægju innan félagsins. Setja skal félaginu mælanleg markmið í allri starfsemi þess.
- Gegnsæi skal haft að leiðarljósi í allri starfsemi félagsins til að tryggja traust allra til félagsins og jákvætt viðhorf til þess.