Aðalfundur Þróttar 12. júní 2026

Knattspyrnufélagið Þróttur boðar til aðalfundar félagsins föstudaginn 12. júní næstkomandi klukkan 18:00 í félagsheimili Þróttar.

Dagskrá aðalfundar er samkvæmt samþykktum félagsins.

Allir skuldlausir félagsmenn, 18 ára og eldri, sem skráðir hafa verið í félagatal að minnsta kosti tveimur vikum fyrir aðalfund, eru kjörgengir til stjórnarstarfa og hafa tillögu- og atkvæðisrétt á aðalfundi félagsins.

Hægt er að ganga frá greiðslu félagsgjalds á vefnum í gegnum Sportabler:
https://www.sportabler.com/shop/trottur/almennt/

Síðar sama dag, klukkan 19:15, tekur meistaraflokkur Þróttar á móti HK á heimavelli. Félagsmenn eru hvattir til að mæta á aðalfundinn og styðja síðan liðið í mikilvægum heimaleik um kvöldið.

Meira í fréttum

Komdu að æfa með Þrótti