Jörundur Áki Sveinsson nýr landsliðsþjálfari u-17ára liðs drengja hefur valið æfingahóp sem kemur saman nú snemma í mars.
Þróttur á þrjá fulltrúa, þá Albert Elí Vigfússon markvörð, Hinrik Harðarson framherja og Daníel Karl Þrastarson, eitilharðan hægri bakvörð í æfingahópinn. Daníel Karl er nú valinn í fyrsta sinn en hinir drengirnir eru vanari á þessu sviðinu. Óskum þeim gleði og velgengni á æfingum.