Þróttarar, okkur vantar sjálboðaliða í sumar til að umgjörð heimaleikja megi vera sem best.
Í öllum tilfellum er best að koma saman hópi fólks sem vinnur saman undir klassísku kjörorði: Margar hendur vinna létt verk.
Þetta er í boði:
- Umsjón með grillinu í tjaldinu á heimaleikjum (hver leikur er ca. 2,5 klst). Leikni í borgarasnúningi og sósu og salat preppi kostur.
- Umsjón með veitingasölu í tjaldinu á heimaleikjum (hver leikur ca 2,5 klst). Hér hittir þú skemmtilega fólkið 😉
- Umsjón með veitingasölu á landsleikjum (tilfallandi, tveir leikir í júní). Hrikalega gaman, síldarvinnslustemmning 🙂
- Vinna í veitingasölu á landsleikjum (tilfallandi, tveir leikir í júní). Hrikalega gaman, síldarvinnslustemmning 🙂
- Meistarakokka sem vilja elda ofan í mfl. kk og kvk í tengslum við heimaleiki (2,5 klst í hvert skipti). Návígi við stjörnurnar okkar.
- Gæsla á heimaleikjum kvenna (2,5 klst á leik). Frábær útivist í en frábærari vestum.
- Gæsla á heimaleikjum karla (2,5 klst á leik). Frábær útivist í en frábærari vestum.
Hægt er að skrá sig með því að smella á meðfylgjandi skjal.
https://forms.office.com/r/QXkJxqVyS8