Finnbogi Hilmarsson fráfarandi formaður Þróttar hefur verið í ábyrgðarstöðum innan félagsins undangengin 18 ár, lengst af sem formaður knattspyrnudeildar en síðastliðin ár sem formaður aðalstjórnar Þróttar. Hann lagði mikla áherslu á aðstöðuuppbyggingu félagsins og lét fylgja með nokkrar myndir af þeim breytingum sem orðið hafa á síðustu árum. Útdrátt úr skýrslu stjórnar má finna hér að neðan og myndirnar sýna ágætlega hvað áunnist hefur á undanförnum árum.
Þau Finnbogi Hilmarsson, Helgi Sævarsson, Hulda Margrét Pétursdóttir og Sigurður Sveinbjörnsson, gáfu ekki kost á sér til endurkjörs í aðalstjórn og fara því úr stjórninni nú eftir áralangt starf í þágu Þróttar. Eru þeim þökkuð óeigingjörn og vel unnin störf fyrir félagið og óskað velfarnaðar í hverju því sem þau taka sér fyrir hendur.
Lifi…..!…

Valbjörn 2015 
Valbjörn 2015 
Valbjörn 2021 
Tjaldið 
Stúkan 2015 
Stúka 2015 
Stúka eftir viðgerð 
Blaðamannastúka, flóðljós, hljóðkerfi 
Tækjasalur fyrr og nú 
Uppbygging á Valbjarnarvelli 
Þvottahús og öryggiskerfi í húsi