Jólafrí æfinga og opnunartími félagsheimilis

Frí verður gefið frá æfingum í knattspyrnu, blaki og handbolta um jól og áramót.
Félagsheimilið lokar kl 12:00 á Þorláksmessu og opnar að nýju mánudaginn 3.janúar.  Sérstakur opnunartími vegna flugeldasölu verður auglýstur síðar.

Knattspyrna – Frí verður gefið frá æfingum í knattspyrnu frá og með 21.desember til og með 2.janúar.  Síðustu æfingar fyrir jól eru því mánudaginn 20.desember og fyrstu æfingar eftir frí eru mánudaginn 3.janúar.

Blak – Frí verður gefið frá æfingum í blaki frá og með 18.desember til og með 2.janúar.  Síðustu æfingar fyrir jól eru því föstudaginn 17.desember og fyrstu æfingar eftir frí eru mánudaginn 3.janúar.

Handbolti – Frí verður gefið frá æfingum í handbolta frá og með 18.desember til og með 2.janúar.  Síðustu æfingar fyrir jól eru því föstudaginn 17.desember og fyrstu æfingar eftir frí eru mánudaginn 3.janúar.