Í aðdraganda ársþings KSÍ eru veittar viðurkenningar fyrir háttvísi og prúðmennsku til liða sem fengu fæst gul og rauð spjöld á síðustu leiktíð. Meistaraflokkar Þróttar fengu báðir viðurkenningu að þessu sinni.
Mfl. kk. hlaut Drago-styttuna í Lengjudeildinni sem veitt er háttvísustu liðunum í tveimur efstu deildum karla.
Þróttur R. var prúðasta liðið í Pepsi Max deild kvenna síðastliðið keppnistímabil og hlaut skjöld og bikar í viðurkenningaskyni.
Nik Chamberlain tók við viðurkenningunum fyrir hönd beggja liðanna.
Til hamingju!