Liam Daði kveður Þrótt

Liam Daði Jeffs hefur ákveðið að ganga til liðs við ÍBV og hefur skrifað undir samning í Eyjum, eftir að félögin höfðu náð samkomulagi sín á milli.

Liam kom til Þróttar í 3ja flokki og hefur leikið rúma 40 leiki fyrir meistaraflokk karla og skorað í þeim 15 mörk.

Kristján Kristjánsson formaður knd. Þróttar segir: “Liam Daði hefur ákveðið að reyna fyrir sér í efstu deild með sínu gamla félagi og við óskum honum auðvitað alls hins besta á nýjum stað um leið og við þökkum fyrir hans framlag til Þróttar.”