Knattspyrnudeild Þróttar hefur náð samkomulagi við Kolbein Nóa Guðbergsson um þriggja ára samning. Kolbeinn Nói er uppalinn Þróttari og hefur alist upp í rauðu og hvítu treyjunni, þar sem hann hefur sýnt sterka tengingu við félagið og mikinn metnað innan vallar sem utan.
Kolbeinn Nói átti frábært sumar síðasta sumar bæði innan vallar og utan vallar en hann gerði garðinn frægan á samfélagsmiðlum ReyCup og hefur hlotið mikið lof fyrir. Á framtíðina fyrir sér bæði í knattspyrnu og á samfélagsmiðlum.
Það er mikill fengur fyrir Þrótt að Kolbeinn Nói kjósi að halda áfram ferli sínum í Laugardalnum. Samningurinn er mikilvægt skref í áframhaldandi uppbyggingu liðsins og undirstrikar áherslu félagsins á að halda í uppalda leikmenn.
LIFI