Fyrirmyndarfélag í dómaramálum árið 2025 er Þróttur R.

Þróttur hefur hlotið viðurkenningu KSÍ sem Fyrirmyndarfélag í dómaramálið árið 2025.

Þróttur hefur í fyrsta skipti í sögunni hlotið viðurkenningu sem Fyrirmyndarfélag í dómaramálum en þetta var tilkynnt í dag á vefsíðu Knattspyrnusambands Íslands. Dómaramálin hjá Þrótti hafa vakið verðskuldaða athygli innan sem utan félagsins og hefur Þróttur sett ný viðmið í umgjörð og fagmennsku þegar kemur að dómaramálum. Hallur Hallsson, íþróttastjóri Þróttar, Elmar Svavarsson, foreldri hjá félaginu og Þróttari ársins 2024 og Gunnar Jarl Jónsson, fyrrum FIFA dómari, hafa haft veg og vanda að því að skipuleggja starfið og hefur ötull mannskapur tekið þátt í vegferðinni úr hópi foreldra, Old Boys og úr hópi yngri flokka félagsins. 

Með því að skapa umgjörð og vettvang fyrir þetta fólk að taka þátt í starfi félagsins eykur félagið félagsauð sinn og er það von félagsins að fleiri félög spýti í lófana í dómaramálum enda ótrúlega ávinningur fyrir iðkendur félagsins að hafa dómaramálin í jafn góðum höndum og þau hafa verið undanfarin ár. Með þessu fær leikurinn að njóta sín og allir iðkendur félagsins njóta þess að spila knattspyrnu við bestu mögulega aðstæður. 

Það er von Dómarafélags Þróttar að fleiri foreldrar komi og taki þátt í því frábæra starfi sem dómgæslan er og um leið von að iðkendur félagsins sjái hag sinn í að taka þátt í verkefninu að bæta enn meira við dómaramálin. 

Við óskum öllum Þrótturum til hamingju með að vera Fyrirmyndarfélag ársins 2025 í dómaramálum.