Aðalfundur Tennisdeildar Þróttar

Ný aðalstjórn tekur við Tennisdeild Þróttar

Á dögunum var skipuð ný aðalstjórn Tennisdeildar Þróttar sem mun leiða starf deildarinnar á komandi misserum. Ný stjórn tekur við með það að markmiði að endurvekja og efla starfsemi deildarinnar og skapa skilyrði fyrir að tennisstarfið hjá Þrótti geti blómstrað á ný.

Mikil áhersla verður lögð á uppbyggingu yngri flokka starfs innan deildarinnar á næstu árum. Markmiðið er að skapa öflugt og aðlaðandi umhverfi fyrir börn og ungmenni sem vilja stunda tennis og leggja þannig grunn að sterkri framtíð deildarinnar.

Yfirþjálfari yngri flokka verður Egill Sigurðsson, fyrrum atvinnumaður í tennis, sem mun leiða þjálfun og uppbyggingu yngri flokka starfsins. Með reynslu sinni og þekkingu er vonast til að hann geti byggt upp metnaðarfullt og öflugt starf fyrir unga iðkendur.

Í aðalstjórn Tennisdeildar Þróttar sitja:

  • Formaður: Herbert McKenzie
  • Gjaldkeri: Kjartan Geirsson
  • Ritari: Kristinn Guðmundsson

Varamaður í stjórn:

  • Rakel Garðars

Ný stjórn hlakkar til að takast á við verkefnin fram undan og vinna með iðkendum, foreldrum og stuðningsaðilum að því að byggja upp öflugt og metnaðarfullt tennisstarf hjá Þrótti.

Egill hampar bikarinn með bros á vör.
Egill Sigurðsson er fyrrum atvinnumaður í tennis og Íslandsmeistari.