Hrafnhildur Brynjólfsdóttir hlýtur heiðursviðurkenninguna Eldmóður – Minningarskjöldur Mundu 2026.

Viðurkenningin er til heiðurs og minningar um Mundu, Mundínu Ásdísi Kristinsdóttur (1972-2022). Hrafnhildur er uppalin á Hvammstanga en settist síðar að í Laugardalnum þar sem hún tengdist íþróttafélaginu Þrótti sterkum böndum.

Blakdeild Þróttar væri ekki á þeim stað sem hún er á í dag ef ekki væri fyrir hana. Hrafnhildur hefur um árabil verið einn af lykildrifkröftum blakstarfs Þróttar. Með elju, fagmennsku og óbilandi áhuga á starfinu hefur hún lagt grunn að því öfluga starfi sem félagið býr að í dag. Hún hefur ekki aðeins stutt við starf meistaraflokka heldur sérstaklega lagt áherslu á uppbyggingu yngriflokka, þar sem framtíð íþróttarinnar mótast. Sjálfboðaliða-andinn hefur einnig smitast áfram, því í dag eru það dóttir hennar og vinkonur sem halda starfinu áfram sem hún hjálpaði til við að byggja upp.

Árið 2009 hvatti hún dóttur sína til að mæta á æfingu í krakkablaki hjá Þrótti. Þá var starf yngri flokka í blaki vart til staðar, en með elju og frumkvæði Hrafnhildar fór starfsemin að vaxa. Hún hvatti vinkonur dóttur sinnar til að taka þátt og skutlaði þeim á æfingar árum saman. Hrafnhildur tók fljótlega að sér lykilhlutverk í starfi foreldra og tók að sér umsjón að skipulagi og utanumhaldi yngriflokka.

Þróttur óskar Hrafnhildi innilega til hamingju með viðurkenninguna.