Lára Dís Sigurðardóttir, 1961-,

Lára Dís Sigurðardóttir, 1961-, hóf störf fyrir Þrótt árið 2005 í félagsheimili Þróttar og vakti strax athygli fyrir röska framkomu og dugnað.  Í gegnum árin hafa Þróttarar getað leitað til Láru með ýmis mál, enda ráðagóð og úrræðasöm.  Í hinum stundum karllæga heimi sem íþróttafélög eru, er gott að hafa manneskju sem sér hlutina frá öðru sjónarhorni.

Auk starfa fyrir Þrótt þá hefur Lára Dís verið virk í félagsstarfi eins og störf hennar í HM hópnum bera glöggt vitni.  Mest allur undirbúningur og tiltekt vegna „Lambalæri að hætti mömmu“ lendir á henni. Sonur hennar Sigurður starfaði einnig lengi fyrir félagið sem liðsstjóri meistaraflokks karla í knattspyrnu og að þjálfun yngri flokka.

Lára Dís hefur verið sæmd silfurmerki Þróttar fyrir störf sín.