Verndun og velferð barna

Það er stefna Knattspyrnufélags Þróttar að vinna gegn því að fordómar, einelti, kynferðisleg áreitni, kynferðislegt ofbeldi og hvers kyns ójafnrétti eða óæskileg hegðun þrífist innan félagsins.

Hjá Þrótti eiga börn og ungmenni að geta tekið þátt í íþróttastarfi í öruggu, jákvæðu og uppbyggilegu umhverfi þar sem virðing, góð samskipti og vellíðan eru höfð að leiðarljósi.

Ábendingar sem varða verndun og velferð barna eru teknar alvarlega og þeim vísað í réttan farveg í samræmi við Viðbragðsáætlun Íþrótta- og æskulýðsstarfs og leiðbeiningar viðurkenndra aðila.

Jafnrétti og virðing

Allir einstaklingar innan Þróttar skulu eiga jafna möguleika á að njóta sín og þroska hæfileika sína óháð kyni, kynvitund, kynhneigð, uppruna, húðlit, trú, fötlun, efnahag, félagslegri stöðu eða öðrum aðstæðum.

Til að stuðla að jafnrétti og virðingu leggur Þróttur áherslu á:

  • að öllum sé mætt af virðingu,
  • að mismunun, fordómar og útilokun séu ekki liðin,
  • að iðkendur, foreldrar, þjálfarar og starfsfólk stuðli að jákvæðum samskiptum,
  • að börn og ungmenni upplifi sig velkomin og örugg í starfi félagsins,
  • að leitað sé ráðgjafar þegar þörf er á.

Fordómar

Fordómar geta birst í orðum, hegðun, útilokun, áreitni eða mismunun vegna útlits, uppruna, kyns, kynhneigðar, kynvitundar, trúar, fötlunar, efnahags eða annarra aðstæðna.

Þróttur hvetur iðkendur, foreldra, þjálfara og aðra félagsmenn til að:

  • taka ekki undir fordómafull ummæli eða hegðun,
  • koma fram við aðra eins og við viljum að komið sé fram við okkur,
  • sýna þeim stuðning sem verða fyrir fordómum eða útilokun,
  • láta vita ef óæskileg hegðun kemur upp,
  • muna að enginn á að standa einn þegar hann verður fyrir fordómum.

Einelti

Einelti er endurtekin hegðun sem er til þess fallin að niðurlægja, særa, útiloka, ógna eða valda vanlíðan. Einelti getur verið líkamlegt, andlegt, félagslegt eða stafrænt.

Hér er ekki átt við venjulegan skoðanaágreining eða árekstra sem geta komið upp í samskiptum, heldur hegðun sem er endurtekin, særandi eða útilokandi.

Til að koma í veg fyrir einelti hvetur Þróttur iðkendur og aðra félagsmenn til að:

  • taka ekki þátt í einelti,
  • sýna þeim stuðning sem verður fyrir einelti,
  • segja frá ef þau verða vitni að einelti,
  • muna að aðgerðarleysi getur litið út eins og samþykki,
  • leita til þjálfara, foreldra, tilkynningaraðila félagsins eða annars fullorðins sem þau treysta.

Neteinelti, særandi skilaboð, niðrandi ummæli á samfélagsmiðlum, útilokun úr hópum eða dreifing myndefnis án samþykkis er ekki liðin í starfi Þróttar.

Kynferðisleg áreitni og kynferðislegt ofbeldi

Kynferðisleg áreitni er óvelkomin hegðun af kynferðislegum toga sem er í óþökk þess sem fyrir henni verður. Hún getur verið orðbundin, myndræn, rafræn eða líkamleg.

Kynferðislegt ofbeldi getur meðal annars falist í óviðeigandi snertingu, kynferðislegu tali, myndsendingum, beiðnum um myndir, þvingun, hótunum eða annarri kynferðislegri hegðun sem fer yfir mörk einstaklings.

Kynferðisleg áreitni og kynferðislegt ofbeldi eru aldrei liðin í starfi Þróttar.

Mál sem varða grun um kynferðislegt ofbeldi gegn barni skulu fara í réttan farveg hjá barnavernd og/eða lögreglu. Þróttur rannsakar ekki slík mál sjálfur en tekur ábendingum alvarlega og vísar þeim áfram til viðeigandi aðila.

Hvert á að tilkynna?

Ef óæskileg hegðun kemur upp innan félagsins er mikilvægt að taka rétt skref. Hægt er að hafa samband við tilkynningaraðila Þróttar, Samskiptaráðgjafa íþrótta- og æskulýðsstarfs, barnavernd, lögreglu eða 112 eftir eðli máls.

Tilkynningaraðilar Þróttar eru:

Hallur Hallsson
Íþróttastjóri Þróttar
hallur@trottur.is

Jón H. Jóhannsson
Framkvæmdastjóri Þróttar
nonni@trottur.is

Ef barn er í bráðri hættu skal alltaf hringja í 112.

Viðbragðsáætlun og nánari upplýsingar

Þróttur styðst við Viðbragðsáætlun Íþrótta- og æskulýðsstarfs þegar upp koma mál sem varða öryggi, líðan eða velferð barna og ungmenna.

Nánari upplýsingar, ráðgjöf og leiðbeiningar má finna hér: