Þróttari vikunnar: Stefán Laxdal Aðalsteinsson

Stefán Laxdal Aðalsteinsson, 1959-, hóf að æfa knattspyrnu hjá Þrótti strax eftir að félagið flutti í Sæviðarsundið.  Hann lék í öllum flokkum og var í mjög svo sigursælum liðum upp marga yngri flokkana.   Árið 2001 var hann kosinn í aðalstjórn félagsins og sat þar til ársins 2008.  Sama ár, þ.e. 2001, varð hann fulltrúi Þróttar í Knattspyrnuráði Reykjavíkur þar sem hann hefur gætt hagsmuna félagsins síðan og er núverandi gjaldkeri ráðsins.  Stefán hefur verið sæmdur gullmerki Þróttar og KSÍ, ásamt silfurmerki KRR.  Hann heldur upp á 61 árs afmæli sitt nú í vikunni, þann 23.okt.