Nik Chamberlain skrifar undir nýjan samning við Þrótt

Nik Chamberlain hefur skrifað undir nýjan 4 ára samning við Þrótt. Nik hefur þjálfað hjá Þrótti frá 2016 og náð frábærum árangri í sinni þjálfun, nú síðast fór hann með kvennalið félagsins í 5ta sæti í efstu deild sem er besti árangur í sögu Þróttar.
Nik er menntaður í íþróttafræðum frá Auburn háskólanum í Montgomery Alabama í Bandaríkjunum og hann er við það að ljúka UEFA-A þjálfaragráðu.
Nik hefur haldið utan um kvennafótboltann Í Þrótti undanfarin ár og er í fullu starfi sem þjálfari mfl. kvenna, 2. fl. og að auki yfirþjálfari yngri flokka stúlkna. Hann sinnir öllum þessum störfum áfram.

Kristján Kristjánsson formaður knd. Þróttar segir: ,,Nik hefur verið sannkallaður hvalreki fyrir kvennaflokka Þróttar og náð mjög góðum árangri þau ár sem hann hefur verið hér. Við lögðum mikla áherslu á að halda honum áfram og það er góð jólagjöf fyrir félagið að innsigla fjögurra ára samning við hann.“