Fimm leikmenn skrifa undir nýja samninga við Þrótt

Fimm af lykilleikmönnum kvennaliðs Þróttar hafa skrifað undir nýja samninga við félagið. Þetta eru þær Álfhildur Rósa Kjartansdóttir, fyrirliði liðsins og íþróttamaður Þróttar 2020, Andrea Rut Bjarnadóttir, Jelena Tinna Kujundzic, Elísabet Freyja Þorvaldsdóttir og Linda Líf Boama. Allar léku þær stórt hlutverk í liði Þróttar á síðasta sumri og munu án efa gera það sumarið 2021. Stelpurnar eru fæddar á árabilinu 2000 – 2003 og hafa þegar öðlast mikla reynslu með meistaraflokki og yngri landsliðum.  Samningar við þessa leikmenn eru þáttur í uppbyggingu leikmannahóps kvennaliðs Þróttar og mikilvægt skref á þeirri leið sem mörkuð var með góðum árangri liðsins síðastliðið sumar. 

,,Þetta er frábær tíðindi fyrir okkur Þróttara, fimm frábærir leikmenn sem þarna skrifa undir og ætla að halda áfram að byggja upp liðið okkar í meistaraflokki kvenna til lengri tíma,“ sagði Kristján Kristjánsson formaður knattspyrnudeildar Þróttar.