Þróttarar bæta við sig öflugum leikmönnum

Þróttarar bæta við sig öflugum leikmönnum 

Þróttur hefur gert samning við þær Katie Cousins og Shae Murison um að leika með liðinu á komandi tímabili í Pepsi Max deild kvenna og báðar koma þær frá Bandaríkjunum.

Katie Cousins er 24 ára miðjumaður og lék með Tennesse háskólanum í Bandaríkjunum. Hún á að baki fjölda leikja með hinu geysisterka U20 ára landsliði Bandaríkjanna og lék m.a. með því á HM U20 kvenna árið 2016. Hún var lykilmaður í sterku liði Tennesse á þeim tíma sem hún lék þar og var tvisvar valinn í úrvalslið allra háskóla í Bandaríkjunum. 

Shae Murison er 22 ára framherji frá Santa Barbara háskólanum. Hún skoraði 34 mörk í 76 leikjum með keppnisliði skólans, þar með talið 17 mörk í 19 leikjum á fyrsta ári sínu. Það ár var hún valin framherji ársins í keppni bestu háskólanna í vesturhluta Bandaríkjanna og í úrvalslið á sama svæði. Á síðasta ári var hún valin leikmaður ársins í Santa Barbara háskólanum.  

,,Þetta eru gríðarlega spennandi leikmenn,“ segir Kristján Kristjánsson formaður knd. Þróttar, ,,Í bland við okkar góða hóp af uppöldum Þrótturum og öðrum leikmönnum sem hafa verið hjá okkur lengi, þá teljum við að þessir leikmenn muni tryggja að Þróttur tefli fram sterku liði á komandi sumri.“ 

Katie Cousins
Shae Murison