U17- Þrír Þróttarar í æfingahópi

Danni albert og Hinrik

Jörundur Áki Sveinsson nýr landsliðsþjálfari u-17ára liðs drengja hefur valið æfingahóp sem kemur saman nú snemma í mars.

Þróttur á þrjá fulltrúa, þá  Albert Elí Vigfússon markvörð, Hinrik Harðarson framherja og Daníel Karl Þrastarson, eitilharðan hægri bakvörð í æfingahópinn. Daníel Karl er nú valinn í fyrsta sinn en hinir drengirnir eru vanari á þessu sviðinu. Óskum þeim gleði og velgengni á æfingum.