Hreinn Ingi endurnýjar samning við Þrótt

Hreinn Ingi Örnólfsson hefur skrifað undir samning um að leika með Þrótti út þetta tímabil. Hreinn er margreyndur varnarmaður og hafði áður leikið með Þrótti um langt árabil, áður en hann tók sér stutt hlé frá knattspyrnuiðkun. Hann snýr nú til baka sterkari en nokkru sinni.

Með Þrótti hefur Hreinn leikið vel á annað hundruð deildar- og bikarleiki og marga þeirra sem fyrirliði liðsins.

Þróttarar bjóða Hrein velkomin á ný í fremstu víglínu.