Íþróttaskóli barna vorið 2021 – opið fyrir skráningu

Knattspyrnufélagið Þróttur mun starfrækja íþróttaskóla barna í vor sem ætlaður eru börnum á aldrinum 1-4 ára.   Stefnt er að því að hafa fjölbreytta dagskrá til þess að efla skyn – og hreyfiþroska barna ásamt því að hafa gaman og læra að umgangast aðra. 

Íþróttaskólinn verður í íþróttasal Langholtsskóla og hefst tímabilið laugardaginn 20.mars og stendur til 1.maí, eða í 7 skipti.  Hópnum verður skipt í tvennt:

Börn fædd 2018-2019 kl. 10:00 – 11:00

Börn fædd 2016 – 2017 kl. 11:00 – 12:00

Skráning er hafin í íþróttaskólann og fer hún fram á skráningarsíðu Þróttar, https://trottur.felog.is  þar sem jafnframt er hægt að ganga frá greiðslu.