Ólöf Sigríður Kristinsdóttir til liðs við Þrótt

Ólöf Sigríður Kristinsdóttir hefur gengið til liðs við Þrótt sem lánsmaður frá Val.

Ólöf er ungur, öflugur framherji sem einnig lék með Þrótti síðastliðið sumar og skoraði þá 6 mörk í 16 leikjum. Auk leikja með Þrótti á hún að baki leiki í næst efstu deild með ÍA. Hún hefur þess utan leikið 20 unglinglandsleiki fyrir Ísland.

Þróttarar bjóða hana hjartanlega velkomna á nýjan leik.