Íþróttaskóli barna

Íþróttaskóli barna haustið 2021 hefst 4.september n.k.

Knattspyrnufélagið Þróttur mun starfrækja íþróttaskóla barna í haust sem ætlaður eru börnum á aldrinum 1-4 ára.   Stefnt er að því að hafa fjölbreytta dagskrá til þess að efla skyn – og hreyfiþroska barna ásamt því að hafa gaman og læra að umgangast aðra. 

Íþróttaskólinn verður í íþróttahúsi ÍFR (Hátún 14) og hefst hausttímabilið laugardaginn 4 .september og stendur til 27. nóvember, eða í 14 skipti.  Hópnum verður skipt í tvennt:

  • Börn fædd 2019 – 2020 kl. 09:00 – 10:00
  • Börn fædd 2017 – 2018 kl. 10:00 – 11:00

Skráning er hafin í íþróttaskólann og fer hún fram á skráningarsíðu Þróttar, https://trottur.felog.is þar sem jafnframt er hægt að ganga frá greiðslu.