Guðlaugur kveður Þrótt

Tilkynning frá Knattspyrnudeild Þróttar Reykjavík. 

Í dag, 28. september 2021, tilkynnti Guðlaugur Baldursson þjálfari meistaraflokksliðs karla í Þrótti, að hann óskaði eftir að láta af störfum. Stjórn deildarinnar hefur orðið við þeirri ósk þó hún hefði gjarna vilja vinna með Guðlaugi áfram. Stjórn knd. vill af þessu tilefni þakka Guðlaugi fyrir afar gott samstarf sem aldrei hefur borið skugga á, góð kynni og mikilvægt framlag til Þróttar. Stjórn knd. Þróttar óskar Guðlaugi jafnframt velfarnaðar í leik og starfi í framtíðinni.

Leit að þjálfara til að leiða karlalið Þróttar upp úr 2. deild er þegar hafin.