Kolbeinn Nói valinn í æfingahóp U15

Kolbeinn Nói Guðbergsson hefur verið valinn í leikmannahóp U15 til æfinga dagana 24. -26. janúar.

Lúðvík Gunnarsson þjálfari U15 landsliðs karla valdi 32 leikmenn frá 16 félögum á æfingarnar, sem fram fara í Skessunni í Kaplakrika, Hafnarfirði.

Til hamingju Kolbeinn Nói!