Franz til liðs við Þrótt

Franz Sigurjónsson er gengin til liðs við Þrótt og hefur skrifað undir samning til næstu 2ja ára.

Franz er 26 ára markvörður, alin upp í Vestmannaeyjum og hefur leikið þar allan sinn feril, í yngri flokkum með ÍBV en síðar í neðri deildum með KFS. Franz er ætlað að styrkja markmannsstöðuna í mfl. karla hjá Þrótti en fyrir eru þar þeir Sveinn Óli Guðnason og Albert Elí Vigfússon.

Franz hefur æft með liði Þróttar frá því snemma í haust og leikið æfingaleiki. Hann verður góð viðbót við hópinn og styrkir hann bæði innan og utan vallar.

Við bjóðum Franz velkominn í Laugardalinn.