Freyja Karín valin íþróttamaður Fjarðabyggðar


Freyja Karín Þorvarðardóttir sem skrifaði nýverið undir samning við Þrótt hefur verið valin íþróttamaður Fjarðabyggðar fyrir árið 2021.

Freyja átti frábært tímabil í 2. deildinni með liði Fjarðabyggðar/Hattar/Leiknis, hún skoraði 22 mörk í 15 leikjum. varð markahæsti leikmaður 2. deildar og eftir það valinn bæði besti og efnilegasti leikmaður deildarinnar af sérfræðingum fotbolta.net

 Freyja er flutt til Reykjavíkur og byrjuð að æfa af fullum krafti með okkar liði og u19 ára landsliðinu þar sem hún hefur átt sæti að undanförnu.

Til hamingju með þessa nafnbót Freyja.