Sigrún vann sjónvarpið!

Fyrsti vinningur í Jólahappdrætti Þróttar var glæsilegt 65 tommu Samsung QLED sjónvarp frá Ormsson.

Sigrún Benedikz var lukkulegur handhafi vinningsmiðans og sótti hún tækið í Þróttarheimilið í dag. Það var sérlega gleðilegt að afhenda Sigrúnu vinninginn þar sem hún hefur lagt mikið til Þróttar, ekki bara með strákunum sínum tveim sem staðið hafa sig vel í fótboltanum heldur hefur hún líka unnið ýmis sjálfboðaliðastörf fyrir félagið af mikilli óeigingirni. Sannkallað vinn- vinn!

Við óskum Sigrúnu til hamingju og þökkum öllum sem keyptu miða sem og unga öfluga sölufólkinu okkur úr yngri flokkum félagsins í knattspyrnu.

Takk og #lifi