Hildur Björg Hafstein lætur af störfum í stjórn Þróttar

Hildur Björg Hafstein hefur tilkynnt aðalstjórn að hún láti nú af störfum í stjórn félagsins vegna mikilla anna á öðrum vettvangi. 

Hildur er Þrótturum að góðu kunn, fædd og uppalin í Vogahverfinu og hefur starfað í kringum félagið alla sína tíð. 

Hún hefur lengi verið í fremstu röð sjálfboðaliða hjá Þrótti, hefur komið að skipulagningu og vinnu í kringum marga viðburði, hefur setið í stjórn Rey Cup, verið þar framkvæmdastjóri auk þess að sitja í mörgum foreldraráðum og öðrum ráðum innan Þróttar.  Hildur er að sögn alls ekki hætt sjálfboðaliðastörfum fyrir Þrótt, mun áfram koma að ýmsum verkefnum og að sjálfsögðu vera í hópi stuðningsmanna á vellinum á komandi keppnistímabili. 

Hildi eru þökkuð fórnfús og óeigingjörn störf í aðalstjórn félagsins og óskað góðs gengis við hver þau verkefni sem framundan eru.  Björn Hlynur Haraldsson sem kjörinn var í varastjórn mun taka sæti í aðalstjórn í stað Hildar fram að næsta aðalfundi.  

Lifi….!